Þá erum við komin með þessa líka fínu bloggsíðu og nú er bara að
vera dugleg að nota hana. Sendiði kveðjur, skrifiði það sem ykkur
liggur á hjarta... skrifiði um frjálsar, tóinlist, áhugamál,
brandara, hvað sem er...
lofiði
mér bara að vera kurteis
Hugmyndin með þessari síðu er fyrst og fremst sú að passa upp á
þennan fína Ármannskjarna sem við höfum. Eins og þið vitið þá
styttist í að ég flytji til Danmerkur, er komin inn í skólann,
jíhaaaa... en það þýðir ekki að ég vilji missa sambandið við ykkur,
síður en svo, ég vil fá að fylgjast með ykkur og leyfa ykkur að
fylgjast með mér!!
En jæja... nú er bara að skrifa pistla, kvitta í gestabókina og
láta sem flesta vini og vandamenn vita af síðunni! Og endilega
látið mig vita ef ykkur langar að setja inn einhverja tengla eða
skoðanakönnun eða...
Heyrumst og sjáumst!
Kv.Berglind
Frí á æfingu á
mánudaginn...